Nýjast á Local Suðurnes

Míluhraðamælir ruglaði ökumann

Sex ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina Einn þeirra ók hópferðabifreið án farþega. Annar sem ók á 105 km hraða þar sem hámarkshraði er 70 km á klukkustund kvaðst ekki hafa áttað sig á að hraðamælirinn mældi í mílum en ekki kílómetrum og því hefði farið sem fór.

Ökumaður sem lögreglan á Sauðurnesjum hafði afskipti af um helgina framvísaði kannabisefnum þegar við hann var rætt. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.

Fáeinir ökumenn til viðbótar voru kærðir fyrir fíkniefna- eða ölvunarakstur. Einn þeirra ók jafnframt sviptur ökuréttindum.