Nýjast á Local Suðurnes

Milka fékk afsökunarbeiðni og nýjan samning

Mynd: Facebook / Keflavík Karfa

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur komist að samkomulagi við Dominykas Milka þess efnis að uppsögn á samningi leikmannsins verði dregin til baka. Mun hann þar að leiðandi leika áfram í búningi Keflavíkur á næstu leiktíð.

Milka endaði síðasta tímabil með 15 stig og 10 fráköst að meðaltali í leik í þeim 27 leikjum sem hann lék en hann leiddi liðið í fráköstum.

Talsverð óvissa ríkti um ástæður uppsagnarinnar þegar ný stjórn tók við stjórnartaumum hjá KKDK, segir í tilkynningu, og var því sett í forgang að ræða við leikmanninn. Um Það var strax ljóst á þeim samtölum að báðir aðilar höfðu áhuga á því að halda samstarfinu áfram. Var það því sameiginleg ákvörðun nýrrar stjórnar og Dominykas Milka að uppsögnin yrði dregin til baka og Milka héldi áfram sem leikmaður Keflavíkur.

Auðvitað hefur óvissan ekki verið góð, hvorki fyrir deildina né Milka sjálfan. Þykir því rétt biðja hlutaðeigandi aðila afsökunar um leið og horft er fram veginn með þau sameiginlegu markmið að gera eins vel á næsta tímabili og hugsast getur með gleði og skemmtun að vopni, segir í tilkynningunni.