sudurnes.net
Miklar framkvæmdir framundan við Bláa lónið - Local Sudurnes
Til stendur að ráðast í framkvæmdir við endurbætur á baðlóni Bláa lónsins í vor. Stefnt að því að stækka útisvæði baðlónsins með því að bæta við nýrri þurrgufu og eimbaði, köldum potti, tveimur misháum nuddfossum, útibekkjum og göngustígum. Þetta kemur fram í umfjöllun Viðskiptablaðsins, hvar rætt er við markaðsstjóra Bláa lónsins. Hún segir vonir standa til að framkvæmdir geti hafist í vor og þeim ljúki áður en háönn ferðaþjónustunnar hefst í sumar. Í síðari áfanga endurbótanna sem ráðast á í síðar er svo stefnt að því að reisa stærðarinnar viðbyggingu undir búningsklefa og allan veitingarekstur við baðgesti og starfsmannaaðstöðu á norðausturhluta lóðarinnar. Meira frá SuðurnesjumMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkBúast við milljón gestum á næsta ári í Bláa lónið – Lokað í tvær vikur í janúarBílanaust opnar á nýEigendur Bláa lónsins þátttakendur í ylstrandarverkefni við UrriðavatnFyrsta 5 stjörnu hótelið verður í Reykjanesbæ – Diamond Suites nær áfanganum með haustinuGeely Group leggur 6 milljarða í CRIFrummatsskýrsla metanólverksmiðju til umfjöllunar hjá SkipulagsstofnunFljúga allan ársins hring milli Keflavíkur og AkureyrarStarfsleyfi Thorsil fellt úr gildi vegna formgalla á auglýsinguSamkaup í viðræður um samruna við fyrirtækjasamstypu Jóns Ásgeirs