sudurnes.net
Mikið álag á bráðamóttöku - Local Sudurnes
Mikið álag er um þessar mundir á bráðamóttöku HSS og er biðlað til fólks að leita frekar til heilsugæslunnar vegna almennra veikinda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni, sem sjá má í heild hér fyrir neðan: Tilkynning frá bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja- Álag á bráðamóttökuna er mikið um þessar mundir og viljum við biðla til fólks að leita frekar til heilsugæslunnar vegna almennra veikinda og langvinnra vandamála án bráðrar versnunar. Biðtími eftir þjónustu á bráðamóttöku er langur og er erindum sem þangað koma forgangsraðað eftir bráðleika. Það er því rík ástæða fyr­ir fólk sem er ekki í bráðri hættu að hringja fyrst í 1700 eða leita upp­lýs­inga á net­spjalli Heilsu­veru áður en leitað er á bráðamóttökuna. Ef um neyðartilfelli er að ræða, hringið í síma 112. Kær kveðja starfsfólk bráðamóttökunnar Meira frá SuðurnesjumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnSegir samning við Útlendingastofnun skapa álag á innviði ReykjanesbæjarCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðTómur kofi hjá björgunarsveit – Skilum krossvið og böndumÓska eftir tillögum að nafni – Hugmyndaríkir leggi höfuð í bleytiKomið að þolmörkum hjá barnaverndSamkeppni um skólasöng AkurskólaMinna um útstrikanir í Suðurkjördæmi en áður – Mest hjá SjálfstæðisflokknumJólahús Reykjanesbæjar við BorgarvegRagnar til [...]