sudurnes.net
Miðflokkurinn þakkar 3.999 manns stuðninginn í Suðurkjördæmi - Local Sudurnes
Miðflokkurinn hlaut 3.999 atkvæði í Suðurkjördæmi, eða 14.3% gildra atkvæða og einn þingmann kjörinn, í Alþingiskosningunum sem fram fóru á laugardag. Á landsvísu hlaut flokkurinn 10,9% atkvæða og sjö þingmenn kjörna. Í tilkynningu frá flokknum kemur fram að félagar í flokknum vilji halda áfram því starfi sem skilaði sér í hraðasta efnahagslega viðsnúningi nokkurrar þjóðar í seinni tíð auk þess að koma á framfæri þökkum fyrir stuðninginn. Tilkynning Miðaflokksins í heild sinni: Við félagar í Miðflokknum í Suðurkjördæmi viljum koma á framfæri kærum þökkum fyrir stuðninginn í aðdraganda alþingiskosninganna og á kjördag. Miðflokkurinn er flokkur með djúpar rætur á miðju stjórnmálanna. Flokkur fyrir skynsamt fólk með skýra sýn á grundvallarmál samfélagsins. Miðflokkurinn er flokkur sem veitt getur stöðugleika og staðið vörð um hefðbundin grunngildi en um leið verið flokkur hugmyndaauðgi og framfara. Flokkur sem leitar til þeirra sem best þekkja til á hverju sviði og styður góðar hugmyndir sama hvaðan þær koma. Miðflokkurinn vill halda áfram því starfi sem skilaði sér í hraðasta efnahagslega viðsnúningi nokkurrar þjóðar í seinni tíð og skila ávinningnum til þeirra sem eiga hann með réttu, almennings á Íslandi. Miðflokkurinn lagði áherslu á það í aðdraganda kosninga að kynna sína stefnuskrá og eiga síðan um hana málefnalega [...]