sudurnes.net
Mest lesnu pistlar ársins: Óþægilegu hlutar fjármálanna og Beruð kynfæri - Local Sudurnes
Pistlahöfundar Local Suðurnes fóru mikinn á árinu og hömruðu á lyklaborðin um allt milli himins og jarðar, allt frá skuldum heimilanna til berra kynfæra. Árni Árna er öflugur á ritvellinum Árni Árnason er öflugur pistlahöfundur sem skrifar föstudagspistla á léttu nótunum, stundum með pólitísku ívafi en þó ekki alltaf. Árni á fjórða mest lesna pistil ársins á Local Suðurnes en í pistlinum skrifar Árni meðal annars um beruð kynfæri, sjálfan sig og offitu. Ritstjórinn á það til að vera á alvarlegu nótunum, hann skrifaði nokkra pistla og komst þessi pistill ritstjórans um ráðningar Reykjanesbæjar í þriðja sætið yfir mest lesnu pistlana á árinu sem er að líða. Pistlar Hauks Hilmarssonar fjármálaráðgjafa vöktu mikla athygli á árinu og voru tveir pistlar Hauks nær jafn mikið lesnir, þessi hér um óþægilegu hluta fjármálanna og svo var pistill Hauks um sparnaðarráð vikunnar vinsæll hjá lesendum Local Suðurnes. Meira frá SuðurnesjumÁrni Árna með föstudagspistla á Local SuðurnesFöstudagsÁrni er fordómalaus en pólitískur – Að vanda!Frá Ritstjóra: Kærar þakkir!Frá ritstjóra: Er lítið um hæft starfsfólk í Reykjanesbæ?Árni Árna spáir meðal annars í Vigdísi Hauks og partývinkonunumFöstudagsÁrni: Níræður fyrrum páfi er stuðbolti af Guðs náðFöstudagsÁrni á laugardegi: Leit í Öskjuhlíð rof á friðhelgi feluhomma?FöstudagsÁrni: Er ekki alveg örugglega 21. öldin?FöstudagsÁrni þorir [...]