Mest lesið á árinu: Kadecostjórar á flottum launum
Tæplega þriðjungur af launakostnaði Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, Kadeco, fyrir árið 2015 fer í þóknanir og hlunnindi til stjórnenda félagsins. Um 250 milljónir króna hafa fallið undir þennan lið í ársreikningum félagsins frá stofnun þess fyrir 10 árum, en um er að ræða greiðslur til framkvæmdarstjóra og stjórnarmanna félagsins.