Nýjast á Local Suðurnes

Mennta og menningarsjóður Voga auglýsir eftir umsóknum

Menntasjóður Sveitarfélagsins Voga auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Nemendur sem luku öðru ári í framhaldsskóla og þeir sem að útskrifuðust úr framhaldsskóla á vorönn 2015 geta sótt um styrk, segir á heimasíðu Voga, en þar er einnig hægt að nálgast umsóknareyðublað.

Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk. og skal umsóknum skilað á bæjarskrifstofu að Iðndal 2.

Með umsókninni skal fylgja staðfest útskrift af námsárangri fyrstu tveggja ára framhaldsskólanáms eða prófskírteini. Styrkirnir verða afhentir á fundi bæjarstjórnar í lok ágúst n.k.

Auk þess verður þremur nemendum sem sýndu bestan námsárangur á lokaprófum í 10. bekk Stóru-Vogaskóla veittur styrkur.