sudurnes.net
Meintir Suðurnesjamenn handteknir í höfuðborginni - Local Sudurnes
Tveir menn um tvítugt voru handteknir í miðbæ Reykjavíkur um helgnia þar sem þeir sátu að drykkju, en talið var að mennirnir væru að neyta heimabruggs. Gátu þeir lítið sem ekkert tjáð sig vegna ástands síns, en talið er að þeir búi á Suðurnesjum, samkvæmt fréttum annara miðla af málinu. Fengu þeir að njóta gistingar í fangageymslu lögreglu þar til rennur af þeim. Nokkrir aðrir brotamenn og konur voru handteknir af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um helgina en ekki var gefið upp hvar á landinu það fólk hefur búsetu. Meira frá SuðurnesjumAK-47 árásarriffill og afsagaðar haglabyssur á meðal þess sem gert var upptæktLeifur metinn hæfastur umsækjendaHafnsögumamaður kvíðir ekki sjóprófum – “Allskonar sögur fara af stað”Heiðarskóli í úrslit SkólahreystiGrindavíkurbær tapar dómsmáli – Prókúrulaus reyndi að kaupa skólastofurReynslubolti tekur við Grindavík“Það er ömurlegt að líða illa” – Magnús Þór Gunnarsson ræðir veikindi sínYfir 260 ökumenn stöðvaðir um helgina – Allir með sitt á hreinu á laugardaskvöldiBæjarstjóri notast við Airbnb – Leigir út íbúð á vegum bæjarinsStyrktu Krabbameinsfélagið veglega eftir slaufusölu