sudurnes.net
Meintir sterar og meint kannabisefni gert upptækt eftir húsleit - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gærkvöld ökumann vegna gruns um að hann æki undir áhrifum fíkniefna. Megn kannabislykt barst úr bifreiðinni þegar lögreglumenn ræddu við manninn og viðurkenndi hann neyslu kannabisefna. Hann heimilaði leit í bifreið sinni og þar fundust meint kannabisefni, meintir sterar og lyf sem maðurinn gat ekki gert grein fyrir. Við leit á heimili hans, að fenginni heimild, fundust einnig meintir sterar. Þá kærði lögregla nokkra ökumenn fyrir of hraðan akstur í vikunni. Einn þeirra mældist á 122 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Annar ók á 112 km. hraða þar sem hámarkshraði er 70 km. á klukkustund. Meira frá SuðurnesjumFimm teknir fyrir of hraðan akstur – Einn á rúmlega tvöföldum hámarkshraðaSvaf ölvunarsvefni undir stýri við lögreglustöðina – Fékk að sofa lengur í fangaklefaHraðakstur á ReykjanesbrautErlendur ferðamaður á hraðferð fékk 100 þúsund króna sektTekinn á tæplega 160 km hraða – Hefur aldrei öðlast ökuréttindiStöðvaður á 176 km. hraða – Sviptur og fær 150 þúsund króna sektTekinn á tæplega 140 km hraða á ReykjanesbrautÁtta kærðir fyrir hraðakstur og einn fyrir ölvunaraksturHundrað þúsund kall í sekt fyrir hraðaksturGreiddi tæplega 70.000 króna hraðasekt á staðnum