sudurnes.net
Meiddist á flótta undan hundi - Local Sudurnes
Hundur sem slapp úr húsi eiganda síns í vikunni, án þess að þess yrði vart, gerði sér lítið fyrir og réðst að manni sem varð á vegi hans. Hann stökk í fætur mannsins sem reyndi að ýta honum frá sér en tókst ekki. Maðurinn hrópaði á hjálp en þar sem enginn virtist heyra til hans greip hann til þess ráðs að klifra upp í bílkerru sem var þar nærri. Við það datt hann og meiddi sig lítillega, að því er virtist. Lögregla ræddi við eiganda hundsins sem var miður sín vegna tilviksins. Jafnframt verður heilbrigðiseftirliti tilkynnt um atburðinn. Meira frá Suðurnesjum“Það er ömurlegt að líða illa” – Magnús Þór Gunnarsson ræðir veikindi sínBæjarstjóri í sóttkví: “Það er full ástæða til að taka ástandið alvarlega”Gjörsamlega út úr heiminum eftir inntöku hakakrosstöfluDramatík þegar Grindavík vann Þór á AkureyriJafnt hjá Njarðvíkingum í fyrsta leik Fótbolta.net mótsinsSkemmtistaðir notast við sameiginlegt Tetra-kerfi – Síbrotamenn bannaðir á öllum stöðumTap hjá Keflavík – Njarðvík á toppinnFresta hátíðarhöldum en halda flugeldasýninguVeðurhamurinn og tjónið – Sjáðu myndbandið!Brimróður sigraði í Maggalagakeppni Rásar 2