Nýjast á Local Suðurnes

Meiddist á flótta undan hundi

Myndin tengist fréttinni ekki að öðru leyti en því að á henni eru hundur og lögreglumenn

Hundur sem slapp úr húsi eiganda síns í vikunni, án þess að þess yrði vart, gerði sér lítið fyrir og réðst að manni sem varð á vegi hans. Hann stökk í fætur mannsins sem reyndi að ýta honum frá sér en tókst ekki. Maðurinn hrópaði á hjálp en þar sem enginn virtist heyra til hans greip hann til þess ráðs að klifra upp í bílkerru sem var þar nærri. Við það datt hann og meiddi sig lítillega, að því er virtist.

Lögregla ræddi við eiganda hundsins sem var miður sín vegna tilviksins. Jafnframt verður heilbrigðiseftirliti tilkynnt um atburðinn.