sudurnes.net
Meðalaldur á Suðurnesjum er lægstur í samanburði við aðra landshluta - Local Sudurnes
Á Suðurnesjum bjuggu 22.026 í árslok 2014 samanborið við 21.560 í árslok 2013 og fjölgaði íbúum því um 2,2%, er það mesta fjölgun allra landshluta á árinu. Fjölgun varð í öllum aldursbilum en mest þó í elstu aldurshópunum yfir 60 ára. Þetta kem­ur fram í ár­bók versl­un­ar­inn­ar 2015, sem kom út í ní­unda sinn á dögunum. Suðurnes eru ásamt höfuðborgarsvæðinu þeir landshlutar þar sem áberandi hærra hlutfall íbúa eru á aldursbilinu 20-29 ára en í aldursbilinu fyrir neðan, 10-19 ára. Líklegt verður að telja að þetta útskýrist að hluta til af aðgengi að háskólum og nemendagörðum þeim tengdum. Meðalaldur Suðurnesjabúa er lægstur í samanburði við aðra landshluta eða 35,37 ár borið saman við 37,45 ár að meðaltali á landsvísu. Launatekjur á Suðurnesjum árið 2012 voru 3.640 þúsund krónur á mann, 12% undir landsmeðaltali en skýrast lágar launatekjur á Suðurnesjum að hluta til af miklum fjölda námsmanna í landshlutanum. Meira frá SuðurnesjumVilja byggja 74 íbúðir við Hafnargötu 12 – Hvað finnst þér?Er þetta einfaldasta uppskrift í heimi? – Grillaðir humarhalarUmdeilt myndband úr Grindavík vekur athygli – Húmor eða virðingaleysi?Hefja bólusetningar í dagBrynja byggir sjö íbúðir – Langur biðlistiAfhentu Barnaspítala Hringsins ágóða af LífsstílshlaupiMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn [...]