Nýjast á Local Suðurnes

Með hjartað á réttum stað og heilann í lagi

Jónína Holm skrifar

Oddný G. Harðardóttir er klár kona og við vitum fyrir hvað hún stendur. Vinnusemi, ósérhlífni, hnitmiðaðar lausnir, tekur ábyrgð og er traust, allt eru þetta góðir eiginleikar og afbragðs kvenkostir í stjórnmálum og þess vegna er hún okkur öllum dýrmæt.

Samfylkingunni er einum flokka treystandi til að koma á réttlæti, velferð handa öllum og til að koma almannaþjónustu í lag, heilbrigðiskerfinu, málefnum fjölskyldna, húsnæðismálum og að auka jöfnuð í samfélaginu.

Oddný er með hjartað á réttum stað og heilann í lagi, nýtum okkur það og kjósum Oddnýju og ekkert hik, áfram nú!

Kveðja,

Jónína Holm Bæjarfulltrúi N listans í Garði