sudurnes.net
Matthías bar sigur úr bítum á Jólapílumóti - Local Sudurnes
Jólamót Stöðvar 2 í pílukasti fór fram þann 6. desember síðastliðinn og var sýnt í sjónvarpinu á jóladag og öðrum degi jóla. Forsvarsmenn Stöðvar 2 buðu tólf þátttakendum á mótið en af þeim voru sex Grindvíkingar. Það var Íslandsmeistarinn Matthías Örn Friðriksson sem bar sigur úr bítum eftir mjög jafna úrslitaviðureign gegn Herði Þór Guðjónssyni. Þeir Grindvíkingar sem tóku þátt í mótinu voru: Matthías Örn Friðriksson Pétur Rúðrik Guðmundsson Hörður Þór Guðjónsson Alex Máni Pétursson Alexander Veigar Þorvaldsson Björn Steinar Brynjólfsson Oft var tekið fram í útsendingu að Grindavík væri orðin Mekka pílunnar á Íslandi. Það er ekki að undra enda margir mjög færir píluspilarar sem koma úr sveitarfélaginu, eins og talið er upp hér að ofan, en bæði hafa Pétur Rúðrik og Matthías Örn hampað Íslandsmeistaratitli í 501 sem er algengasti píluleikurinn. Þá hefur Guðjón Hauksson, faðir Harðar Þórs margsinnis orðið Íslandsmeistari í pílukasti, eða oftast allra. En a.m.k. 17 Íslandsmeistaratitlar hafa skilað sér til Grindavíkur frá árinu 1986. Meira frá SuðurnesjumKeflvíkingar taka á móti Stjörnunni í kvöldÍRB sigurvegari á AMÍ sjötta árið í röðKeflavíkursigur í tvíframlengdum leikMár Gunnarsson með sex Íslandsmet á Haustmóti ÁrmannsÞriggja leikja bann fyrir olnbogaskotDramatík hjá Keflavík – Margrét rekin og Falur hættur sem formaðurReynsla í fallbaráttu kemur [...]