Matareitunarmáli sem upp kom í Sandgerði lokið með sátt
Um miðjan mánuðinn var greint frá því að sýking í lambakjöti væri líklegasta skýringin á veikindum fólks sem sóttu brúðkaupsveislu í Sandgerði, 34 af um 60 veislugstum veiktust, á meðan á veislunni stóð.
Fram kom í Farsóttarfréttum landlæknisembættis að sýkingin sem veislugestir fengu mætti líklega rekja til lambakjöts sem var reitt fram í veislunni. Ekki var unnt að taka sýni úr lambakjötinu því það kláraðist í veislunni.
Morgunblaðið greinir frá því í morgun að sátt hafi náðst á milli brúðhjónanna í Sandgerði og veitingamannsins, sem sá um veitingar í veislunni, Magnúsar Inga Magnússonar sem flestir kannast við sem eiganda Texasborgara. Ekki kemur fram í frétt Morgunblaðsins í hvetrju sú sátt fellst, en fram kom í fréttum af málunum að brúðhjónin sæktust ekki eftir bótum hedur eingöngu endurgreiðslu frá veisluþjónustunni.