sudurnes.net
Margt áhugavert í boði fyrir unglinga í Reykjanesbæ - Sjáðu bæklinginn hér! - Local Sudurnes
Nýlega var gefin út bæklingur á veraldarvefnum þar sem starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Fjörheima yfir veturinn er kynnt. Félagsmiðstöðin er staðsett á Hafnargötu 88 og er fyrir nemendur í 8. – 10. bekk grunnskólanna í Reykjanesbæ. Margt áhugavert er í boði fyrir nemendur grunnskólanna þennan veturunn, en sem dæmi má nefna að starfræktir verða stelpuklúbbur og strákaklúbbur. Í tilkynningu á heimasíðu Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar kemur fram að mikilvægi tómstunda sé gríðarlegt, ekki síst í ljósi aukinnar kyrrsetu barna og unglinga sem meðal annars er rakin til aukinnar snjalltækjanotkunar. Þá beinir ÍT-ráð þeim tilmælum til foreldra að kynna bæklinginn fyrir unglingum sínum, en bæklinginn má finna hér. Meira frá SuðurnesjumHeilsu- og forvarnavika – Ókeypis heilsufarsskoðun og frítt í sundBjóða upp á kvíða og sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir börn og unglingaMjög góð þátttaka í Heilsu- og forvarnarvikuSilju Dögg ekki boðið í BDSM partý – Upptekin í innanflokksmálum FramsóknarflokksValdimar meiddur í baki – Reiknar með að verða orðinn góður fyrir maraþoniðMeiri vinnuskólavinna – “Skiptir miklu máli að unglingar vakni snemma á sumrin”Ferðatékkinn nýtist vel á Suðurnesjum – Margt í boði sem kostar ekki krónu!Risi í veitingasölu á flugvöllum opnar stað á KEFEinfalt og hollt – Fiskur og franskar á 20 mínútum!Valdimar kláraði maraþonið með stæl – Stefnan sett á Esjuna