Mánuður síðan fundað var um ónæði af flugumferð – Enn mikið flogið yfir byggð
Í bókun Bæjarráðs Reykjanesbæjar í morgun, beinir ráðið þeim tilmælum til flugvallaryfirvalda á Keflavíkurflugvelli og þeirra flugfélaga sem nota flugvöllinn, að reynt verði eftir fremsta megni að draga úr og takmarka óþarfa ónæði sem íbúar Reykjanesbæjar verða fyrir vegna flugumferðar um Keflavíkurflugvöll.
Norður-suður flugbraut Keflavíkurflugvallar verður lokuð í allt sumar vegna malbikunarframkvæmda. Áætluð verklok eru í lok september. Á meðan mun öll flugumferð fara um austur-vestur brautina. Flugvélar sem taka á loft í austur eða koma til lendingar úr austri munu því fara yfir byggð í Njarðvík í meira mæli en þegar báðar brautirnar eru í notkun.
Rétt um mánuður er síðan Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Guðlaugut Helgi Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfissviðs áttu fund með Haraldi Ólafssyni yfirflugumferðarstjóra í Flugturninum á Keflavíkurflugvelli og Þresti Söring framkvæmdastjóra Keflavíkurflugvallar varðandi ónæði af flugumferð yfir byggðir Reykjanesbæjar.
Á þeim fundi va ákveðið að reyna að lágmarka ónæði vegna flugs meðal annars með því að notast við flugtaksferla sem miða að því að hreyflum sé beitt þannig að þeir valdi sem minnstum hávaða. Í öðru lagi á að beina flugumferð sem mest um vestari enda flugbrautarinnar, sem liggur út af Hvalsnesi, þegar það er hægt en því tengjast margir aðrir þættir s.s. eldsneytisnotkun, flugtími o.fl. Þetta virðist ekki hafa gengið eftir þar sem bæjarráð sá ástæðu til að senda frá sér fyrrgreind tilmæli í dag.
Í bókuninni kemur fram að bæjaryfirvöldum sé ljóst að ýmsir þættir séu þess valdandi að nauðsynlegt geti verið að beina þurfi flugumferð yfir byggð, en biðlar til flugvallaryfirvalda að hafa lífsgæði íbúa í huga þegar ákvarðanir um flugstefnu eru teknar.
„Íbúar Reykjanesbæjar hafa í rúm 60 ár búið í sátt og samlyndi við Keflavíkurflugvöll og vilja gera það áfram. Alþjóðaflugvöllurinn er stærsti vinnustaður Suðurnesja og skiptir gríðarlega miklu máli fyrir mannlíf svæðisins. Bæjaryfirvöldum er fullkomlega ljóst að taka þarf tillit til öryggis, veðurs og vinda, flugtíma, eldsneytisnotkunar o.fl. Með þessari bókun er þó verið að biðja um að lífsgæði íbúa og gesta Reykjanesbæjar verði jafnframt höfð ofarlega í huga þegar ákvarðanir eru teknar um hvaðan og hvernig skuli tekið á loft og lent,“ segir í bókuninni.