sudurnes.net
Mannlausar bifreiðar í árekstri - Local Sudurnes
Bifreið sem lagt hafði verið í bifreiðastæði í Keflavík í gærkvöld lagði óvænt af stað og rann aftur á bak út úr stæðinu, norður Hafnargötu þar sem hún fór þversum á götunni og hafnaði á annarri bifreið sem var kyrrstæð og mannlaus í nokkurri fjarlægð. Lítils háttar skemmdir urðu á báðum bifreiðunum en ekki urðu aðrar afleiðingar af ferðalagi þeirrar fyrrnefndu. Þá varð árekstur á Reykjanesbraut nærri Flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar erlendur ferðamaður stöðvaði bifreið sína á veginum og annar ók aftan á hana. Töluverðar skemmdir urðu á bifreiðunum og var önnur þeirra óökuhæf eftir óhappið. Ekki urðu slys á fólki. Meira frá SuðurnesjumÞriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut – Ökumennirnir sluppu allir ómeiddirÁttaði sig ekki á fjalægð frá bílalúgu og ók utan í söluturnFlutningabíll valt á ReykjanesbrautÖkumaður bifhjóls féll í götunaBílvelta á Reykjanesbraut – Sofnaði undir stýriTvær bílveltur og fjórhjólaslys á Suðurnesjum um helginaFluttur á Landspítala eftir reiðhjólaslysFluttur á bráðamóttöku Landspítala eftir mótorhjólaslysGrunaður um ölvunarakstur valt ofan í skurðEkið á fimm ára barn