sudurnes.net
Mannlaus bifreið sem flautaði ótt og títt raskaði næturró íbúa - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum kærði á þriðja tug ökumanna fyrir of hraðan akstur um helgina. Sá sem hraðast ók mældist á 138 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. Ökumannsins bíður 150 þúsunda króna sekt. Annar ökumaður sem mældist á 119 km hraða var grunaður um ölvunarakstur. Þá voru höfð afskipti af ökumanni sem aldrei hafði öðlast ökuréttindi og gekkst viðkomandi við brotinu. Enn fremur var, nú undir morgun, tilkynnt um mannlausa bifreið sem flautaði ótt og títt og raskaði næturró íbúa í nærliggjandi fjölbýlishúsum. Lögreglumaður aftengdi rafmagn bifreiðarinnar og lét hún þá af flautinu. Meira frá SuðurnesjumHundrað þúsund kall í sekt fyrir hraðaksturDýr hraðakstur á ReykjanesbrautRökuðu inn milljónum króna á nokkrum dögum – “Margborgar sig að fara að umferðarreglum”Níu kærðir fyrir hraðakstur og einn fyrir ölvunaraksturMældist á 149 kílómetra hraða – Svipting og 210 þúsund króna sektGreiddi tæplega 70.000 króna hraðasekt á staðnumStöðvuðu 150 ökumenn17 ára ökumaður ók hraðast allra – Sviptur og fær 130.000 króna sektErlendur ferðamaður á hraðferð fékk 100 þúsund króna sektOf seinn í flug fær háa sekt