sudurnes.net
Mannanafnanefnd er FöstudagsÁrna ofarlega í huga - Local Sudurnes
Get svo svarið það finnst ég skrifa föstudagspistil þriðja hvern dag – við verðum komin í Spedo sundskýlurnar og bikiníin í 12° áður en við vitum af ! Hérna kemur pistill vikunnar, hann þarf ekki endilega að endurspegla skoðun þjóðarinnar, en höfum smá gaman af lífinu:) Árni Árna Biggest loser, 3ja sería hófst í vikunni og að þessu sinni er Eyþór ekki með, það kom mér soldið á óvart. Ég hélt að Reykjanesbæ hefði gert samning um afnot af Ásbrú með því skilyrði að Eyþórinn okkar væri með í pakkanum. Ég er mikill aðdáandi þáttanna og þarf að passa mig að enda ekki sem þátttakandi. Gurrý þjálfari er svo mikill nagli, ég dýrka hana, en ég þarf að kvarta við Skjá einn. Það er alveg tímabært að Evert verði ber á ofan í einum þætti, bið nú ekki um meira. Landsliðið okkar í handbolta hélt á EM og maður gat varla kveikt á útvarpi eða horft á sjónvarp án þess að heyra endalausar auglýsingar þess efnis. En ferðin breyttist skyndilega bara í hálfgerða helgarferð hjá strákunum okkar eftir einn súrasta leik liðsins til þessa. EN þeir verða alltaf strákarnir okkar og við stöndum með þeim. Þetta er bara eins og [...]