sudurnes.net
Mál gegn fyrrum yfirlögfræðingi lögreglunnar á Suðurnesjum fellt niður - Local Sudurnes
Mál á hendur Öldu Hrönn Jóhannsdóttur, aðallögfræðingi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, vegna svokallaðs LÖKE-máls hefur verið fellt niður. Alda Hrönn rannsakaði málið þegar hún var staðgegngill lögreglustjóra á Suðurnesjum og yfirlögfræðingur hjá sama embætti. Forsaga málsins er sú að lögreglumaður var kærður fyrir að fletta upp fjölda kvenna í fyrrnefndu kerfi. Hann var sakaður um að hafa dreift upplýsingunum um konur til félaga sinna. Fallið var frá þeim ákærulið. Lögreglumaðurinn var dæmdur í Hæstarétti fyrir trúnaðarbrot með því að hafa sent tölvuskeyti á Facebook til annars einstaklings með upplýsingum sem leynt áttu að fara. Í yfirlýsingu sem Alda Hrönn sendi frá sér og birt er að hluta á vef DV kemur fram að settur héraðssaksóknari hafi komist að því að ekkert hafi komið fram við rannsókn málsins á hendur henni sem styðji þær ásakanir sem á hana voru bornar hafi verið tilefni rannsóknarinnar. Þá segir hún að niðurstaða setts héraðssaksóknara hafi verið afdráttarlaus en þar segi meðal annars; „Eins og mál þetta liggur fyrir er þó ekkert sem bendir til þess að kærða hafi í heimildarleysi rannsakað málið, aflað upplýsinga, dreift nektarmyndum eða borið rangar sakargiftir á kærendur. Enn fremur hafa ekki komið fram neinar upplýsingar sem færa rök að því að kærða hafi veitt [...]