sudurnes.net
Mældist á 142 km hraða með barn í bílnum - Erlendur á fleygiferð fær háa sekt - Local Sudurnes
Ökumaður sem mældist á 142 km hraða í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund var með barn í bíl sínum. Auk sektar sem hann þarf að greiða var barnaverndaryfirvöldum gert viðvart um málið. Þessi ökumaður var einn af 29 sem kærðir hafa verið fyrir hraðakstur í umdæminu á undanförnum dögum. Hann ók þó ekki hraðast af þessum hóp því erlendur ferðamaður mældist á 163 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km, sá á von á allt að 150.000 króna sekt samkvæmt sektarreikni Samgöngustofu. Þá voru á annan tug ökumanna handteknir vegna gruns um vímuefnaakstur og sex sektaðir fyrir að aka á negldum hjólbörðum. Loks bar nokkuð á því að ökumenn væru að tala í síma án þess að nota handfrjálsan búnað og máttu þeir greiða sekt í samræmi við brot sín. Meira frá SuðurnesjumBörnum brugðið við sprengingar á skólalóðBílvelta í grennd við Helguvík – Tveir sluppu ómeiddirUnglingur stal bíl og fór á ísrúntHjólreiðakeppni um Reykjanesið16 ára tekinn réttindalaus við akstur undir áhrifum fíkniefnaLandslið tónlistarmanna á KeflavíkurnóttumViltu eignast Hafnfirðing? – Það er mögulegt að nálgast þá gefins!Brot á reglum um meðferð sprengiefnis geta varðað allt að fjögurra ára fangelsiÖflugir skjálftar á ReykjanesiBjóða bæjarbúum sand [...]