Nýjast á Local Suðurnes

Lýsa eftir Sindra Þór – Hefur sætt gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á tölvuþjófnaði

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Sindra Þór Stefánssyni en hann strauk frá fangelsinu að Sogni nú í nótt.  Sindri hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 2. febrúar 2018 vegna rannsóknar lögreglunnar á umfangsmiklum þjófnaði á tölvubúnaði.  Sindri er í þróttamannslega vaxinn með skolleitt hár, skegghýung og 192 scm á hæð.  Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum strauk Sindri frá Sogni kl. 01:00.

Allir þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Sindra frá því kl. 01:00 í nótt er beðnir um að koma þeim upplýsingum á framfæri við Lögregluna.