sudurnes.net
Lottóvinningarnir streymdu til Reykjanesbæjar - Local Sudurnes
Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti gærkvöldsins. Fjórir heppnir miðaeigendur skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmar 124 þúsund krónur hver. Einn miði var keyptur á Olís Básnum, Vatnsnesvegi 16 í Reykjanesbæ, tveir miðar á lotto.is og einn miði er í áskrift. Enginn var með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker kvöldsins en sjö voru með 2. vinning og fá 100 þúsund krónur hver. Einn miði var keyptur á Orkunni, Fitjum 2 í Reykjanesbæ, einn miði í Mini Market, Hafnargötu 80 í Reykjanesbæ og fimm miðanna eru í áskrift. Heildarfjöldi vinningshafa var 6.309, segir í tilkynningu. Meira frá SuðurnesjumTíu milljóna Víkingalottómiði keyptur í ReykjanesbæRúmlega 26 milljóna lottóvinningsmiði keyptur í ReykjanesbæHundrað þúsund á N1 miðaMilljóna lottómiði seldur í NjarðvíkHeppinn lottóspilari í ReykjanesbæTveir 227 þúsund króna vinningar til ReykjanesbæjarNjarðvíkingar fresta síldarhlaðborðiFramkvæmdir fyrir tæpar 1300 milljónir krónaMjög góð þátttaka í Heilsu- og forvarnarvikuTæplega 10 milljóna lottóvinningsmiði keyptur á Fitjum