Lokað fyrir heita vatnið á þriðjudag
Vegna viðgerðar á stofnlögn hitaveitu þarf að taka heita vatnið af þriðjudaginn 18. september kl. 16:00.
Lokað verður fyrir vatnið fram á nótt eða þangað til að viðgerð er lokið.
Í tilkynningu frá HS Veitum kemur fram að eftirfarandi staðir verði heitavatnslausir:
Reykjanesbær (Ásbrú og Hafnir verða ekki heitavatnslaus)
Sandgerði
Garður
Sveitarfélagið Vogar
Þeir staðir sem verða ekki fyrir áhrifum frá þessu eru:
Grindavík
Flugstöðvarsvæði
Ásbrú
Hafnir