Nýjast á Local Suðurnes

Loka Hlévangi og byggja á Nesvöllum

Mynd: Já.is

Fyrirhugað er að byggja 60 rýma hjúkrunarheimili á Nesvöllum. Hjúkrunarheimilinu Hlévangi verður lokað og munu þau 30 rými sem þar eru flytjast að Nesvöllum. Því er um að ræða aukningu um 30 rými í Reykjanesbæ.

Þetta kom fram á kynningu sem Ása Eyjólfsdóttir, forstöðumaður öldrunarþjónustu, hélt á síðasta fundi Öldungaráðs Reykjanesbæjar. Ráðið fagnar aukningu hjúkrunarrýma í sveitarfélaginu en minnir þó á að nauðsynlegt sé að hugsa til framtíðar og að fjöldi hjúkrunarrýma haldist í hendur við fjölgun íbúa.