sudurnes.net
Lögreglumaður bitinn í höndina við skyldustörf - Local Sudurnes
Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af um helgina vegna gruns um ölvunarakstur brást illa við og beit lögreglumann í höndina. Ökumaðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem tekin var af honum skýrsla. Lögreglumaðurinn fór á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Þá var lögreglu tilkynnt um bifreið utan vegar skammt frá hringtorginu við Grænás. Ökumaður var sjáanlega ölvaður og var hann handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem frekari rannsókn fór fram. Meira frá SuðurnesjumPóstberi kærði hundsbitHundur beit barnHundur beit innbrotsþjófHundur beit bréfbera í hönd og fótRéðst á flugfreyju og beit farþegaBeit lögreglumann við handtökuEngin viðbrögð frá Reykjanesbæ við vinabeiðniBeit hjálpsaman lögreglumann í læriðÞurfti aðhlynningu eftir að hafa verið bitin af hundiMikill áhugi á Græna iðngarðinum í Helguvík