Lögreglan sektar ekki í bili
Lögreglan á Suðurnesjum mun ekki sekta ökumenn bifreiða sem komnar eru á nagladekk. Búast má við hálku víða þar sem nú er spáð kólnandi veðri á landinu, segir í tilkynningu frá lögreglu á Facebook.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna varkárni og fylgjast vel með akstursskylirðum. Þá er gott að hafa í huga að þrátt fyrir að engin hálka sé á þeim stað þar sem lagt var af stað þá geta skilyrði fyrir hálku verið í næsta nágrenni.