Lögreglan fær nýja bíla – Hannaðir til að auka öryggi lögreglumanna
Lögreglan á Suðurnesjum er eitt af fyrstu embættunum sem fær nýja sérhannaða bíla til afnota, um er að ræða Volvo V90CC 4×4 bifreiðar, sem voru teknar í notkun í dag.
Bifreiðarnar sem um ræðir eru afar öflugar í þau verkefni sem þeim er ætlað. Vélin er um 238 hestöfl og togið er mikið. Þá er hemla- og fjöðrunarbúnaður sérstyrktur ásamt tvöföldu rafkerfi.
Mikil áhersla er lögð á öryggisbúnað sem er mikill og góður og eru bílarnir með nýjar merkingar sem eiga að auka öryggi lögreglumanna til muna.
Allur lögreglubúnaður bílanna er nýr, radartæki, upptökubúnaður og fjarskiptabúnaður.
Þau lögregluembætti sem tóku við bifreiðunum í dag eru lögreglan á Vestjörðum, lögreglan á Vesturlandi, lögreglan á Norðurlandi-Eystra og lögreglan á Suðurnesjum.