Nýjast á Local Suðurnes

Lögreglan á Suðurnesjum tekur þátt í Twitter-maraþoni – #löggutíst

Lögreglan á Suðurnesjum sem hefur undanfarin misseri vakið athygli fyrir skemmtilegar færslur á samfélagsmiðlinum Facebook hefur nú hreiðrað um sig á öðrum vinsælum samfélagsmiðli, Twitter og þar munu lögreglumenn byrja af krafti, en á morgun, 16. desember, fer fram Twitter-maraþon lögreglunnar, svokallað Löggutíst.

Í löggutístinu munu Lögreglan á Norðurlandi eystra, Lögreglan á Suðurnesjum og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu nota samfélagsmiðilinn Twitter til að segja frá öllum verkefnum sem koma á borð þessara lögregluliða frá því kl.16 til kl.04 á laugardagsmorguninn. Tilgangur viðburðarins er að gefa almenningi innsýn í störf lögreglu með því að fylgjast með útköllum sem henni berast, fjölda þeirra og hversu margvísleg þau eru.

Á meðan viðburðinum stendur munu embættin nota #-merkið #löggutíst til að merkja skilaboðin.

Lögreglan á Norðurlandi eystra mun tísta frá sínum notaendaaðgangi: @logreglanNE – Það má einnig sjá hér www.twitter.com/logreglanNE
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun tísta frá sínum notaendaaðgangi: @logreglan – eða á www.twitter.com/logreglan
Lögreglan á Suðurnesjum mun tísta frá sínum notaendaaðgangi: @sudurnespolice – eða á www.twitter.com/sudurnespolice