Lögregla varar við aðstæðum á Reykjanesbraut – Nokkrir farið út af
Mjög hált hefur verið á Reykjanesbrautinni seinnipart dags, eins og víðar, og beinir lögregla því til ökumanna að gæta varúðar og aka miðað við aðstæður. Slabb er byrjað að myndast ofan á vegum og með hálkuna undir verða aðstæður því mjög varhugaverðar.
Nokkrar bifreiðar hafa farið út af Reykjanesbrautinni nú á skömmum tíma. Blessunarlega hafa þó ekki orðið slys á fólki, segir í tilkynningu lögreglu.