Nýjast á Local Suðurnes

Lögregla tók erlenda ferðamenn í kennslustund – Kunnu ekki að stilla ljósabúnað

Lögreglan á Suðurnesjum hélt um helgina uppi eftirliti á Reykjanesbraut, skammt frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar, til að athuga ástand ökumanna og ekki síður til að árétta notkun ljósabúnaðar.

Nokkur fjöldi bifreiða sem voru á leið frá flugstöðinni var stöðvaður. Voru þar meðal annars á ferðinni allmargir erlendir ferðamenn sem greinilega kunnu ekki að stilla ljósin á bifreiðunum  sem þeir óku svo fullnægjandi væri.

Þeir voru teknir í örstutta kennslustund til að auka öryggi þeirra sjálfra og annarra í umferðinni.