Lögregla leysti upp partí
Lögreglan á Suðurnesjum leysti á dögunum upp samkomu í bílskúr þar sem ummerki voru um fíkniefnaneyslu.
Í tilkynningu lögreglu kemur fram að þrír gestanna hafi verið undir lögaldri auk þess sem einn þeirra framvísaði kannabisefni. Haft var samband við forráðamenn þeirra sem voru undir lögaldri og tilkynning send til barnaverndarnefndar.