sudurnes.net
Lögregla leitar eiganda bílhurðar sem kræktist í flatvagn - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir að eigandi bílhurðar sem að einhverjum ástæðum festist við flatvagn sem lagður er í Grindavík gefi sig fram hið fyrsta. Litlar skemmdir eru á flatvagninum en miðað við að hurð ökutækisins, sem ók á hann, er föst á vagninum má leiða líkur að því að skemmdirnar séu öllu meiri þar, segir í tilkynningu lögreglu á Facebook, sem sjá má hér fyrir neðan. Ef eigandinn sér þetta, þá getur hann nálgast hurðina sína á Lögreglustöðinni við Hringbraut. Meira frá SuðurnesjumRagnheiður Elín hættir í stjórnmálumFíklar hysji upp um sig og fargi notuðum sprautumEinn á dag tekinn undir áhrifum fíkniefna við aksturÁrni Sigfússon svarar Andstæðingum stóriðju: “Framkvæmdin er mér gríðarleg vonbrigði”Litla dæmið í loftið á föstudag – Sjáðu treilerinn!Skemmdarvargur klippir á ljósleiðarastrengi og tekur brunakerfi úr sambandiBjörn Steinar segist hafa verið rekinn frá Grindavík: “Gefst ekki upp þó á móti blási”Hulk Hogan brugðið eftir harkalega lendingu á Keflavíkurflugvelli – Myndband!Ökumenn hafa lent í vandræðum í slæmu skyggniNjarðvíkingar fara syngjandi í úrslitin – Heyrðu öll þrjú Njarðvíkurlögin hér!