Lögregla leitar að brennuvargi
Eldur kom upp í gömlu þvottahúsi á Ásbrú um klukkan 5 í morgun, allt tiltækt slökkviliðs Brunavarna Suðurnesja og slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli var kallað út. Talsverður eldur var í byggingunni en greiðlega gekk að slökkva eldinn.
Samkvæmt Facebook-síðu Lögreglustjórans á Suðurnesjum leikur grunur á að kveikt hafi verið í húsinu en ekkert rafmagn er á byggingunni.
Þeir sem kunna að hafa upplýsingar um málið er bent á að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í gegnum síma eða með því að senda skilaboð hér á Facebook.