sudurnes.net
Lögregla lagði hald á kannabisefni og e-töflur í húsleit - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum haldlagði kannabisefni, meintar e – töflur og stera í húsleit sem gerð var í íbúðarhúsnæði í umdæminu í fimmtudag. Megna kannabislykt lagði út úr íbúðinni þegar lögreglumenn bar að garði. Húsráðandi heimilaði leit og í húsnæðinu fundust ofangreind efni. Um var að ræða tugi af e – töflum og steratöflum. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-500. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Meira frá SuðurnesjumFundu fíkniefni á víð og dreif um íbúðarhúsnæðiMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnFaldi fíkniefni milli fóta sér – Grunuð um dreifingu og söluAllir komnir með nýjar tunnur og flokkun hefst af fullri alvöruReikna með að kosið verði um sameiningu í haustStórbruni í HelguvíkÍbúar á Suðurnesjum sækja þjónustu út fyrir svæðið í miklum mæliEndaði á toppnum eftir glæfraakstur á ReykjanesbrautFerskir vindar í Garði – Sýningar og kynningar næstu tvær helgarFlöskuþjófar á ferð í Garði og dósaþjófar í Reykjanesbæ