Lögregla hvetur fólk til að vera á varðbergi
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hvetur íbúa í Reykjanesbæ til að skoða myndefni á eftirlitsmyndavélum og að vera á varðbergi gagnvart grunsamlegum mannaferðum við híbýli sín að næturlagi.
Þessi hvatning lögreglu kemur til vegna aðila sem hefur verið að fara inn í heimahús og bílskúra á svæðinu.
“Íbúar eru sérstaklega hvattir til að læsa öllum hurðum, bifreiðum og geymslum. Ef fólk er með eftirlitsmyndavélakerfi við hús sín þá biðjum við ykkur endilega um að renna í gegn um efnið og kanna hvort að eitthvað sé þar að finna sem getur aðstoðað okkur við leitina. Meðfylgjandi eru myndir sem náðust úr öryggismyndavélakerfi af aðilanum.” Segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Fólk er hvatt til að hafa samband við neyðarlínu í síma 112 eða hafa samband við lögregluna í gegnum samfélagsmiðla.