Lögregla fylgdi gildandi verklagsreglum - Rannsókn á andláti hófst eftir að niðurstaða réttarmeinafræðings barst - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum segir að gildandi verklagsreglum hafi verið fylgt við aðkomu að andláti konu á sextugsaldri en konan fannst látin í heimahúsi þann 28. mars síðastliðinn. Lögreglan segir að rannsókn sé í fullum gangi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni, en þar segir jafnframt að þann 28. mars hafi ættingi konunnar tilkynnt um lát hennar til lögreglunnar á Suðurnesjum. Rannsóknarlögreglumaður fór þegar ásamt lækni og presti á staðinn og að ekkert á vettvangi hafi bent til þess að eitthvað saknæmt hefði átt sér stað. Sama máli gegndi um líkskoðun á sjúkrastofnun, segir í tilkynningu. Þá segir í tilkynningunni að þann 31. mars hafi lögreglu borist niðurstaða réttarmeinafræðings þess efnis að sterkur grunur léki á að andlátið hefði borið að með saknæmum hætti. Þá þegar var karlmaður á sextugsaldri handtekinn vegna rannsóknar á málinu. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald frá 1. apríl til 8. apríl næstkomandi og staðfesti Landsréttur þann úrskurð 3. apríl síðastliðinn. Það skal undirstrikað að lögregla fylgdi gildandi verklagsreglum við aðkomu að málinu frá fyrstu stundu. Rannsókn er í fullum gangi en ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo komnu máli, segir í tilkynningu lögreglu. Meira frá SuðurnesjumLést eftir að hafa kastað sér úr leigubíl á ferðReyndi að [...]