sudurnes.net
Löggur í leyni moka seðlum í ríkiskassann - Hraðamæla í myrkri með öll ljós slökkt - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum hefur undanfarin misseri sektað hátt í hundrað ökumenn í umferðarátaki í þéttbýli og þá sérstaklega í grennd við skóla. Þá hafa margir ökumenn verið stöðvaðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut. Fjölmargir ökumenn hafa verið sektaðir á meðan á átakinu hefur staðið auk þess sem að minnsta kosti einn ökumaður var sviptur ökuréttindum á staðnum. Suðurnes.net hefur undanfarið fengið nokkrar ábendingar þess efnis að lögregla láti lítið á sér bera við eftirlitið, þannig hafa lögreglumenn við hraðaeftirlit á Reykjanesbraut slökkt öll ljós á lögreglubílum eftir að dimma tekur, lögreglubílum hefur verið lagt aftan við skilti við Njarðarbraut og við eftirlit á Faxabraut, þar sem á fimmta tug ökumanna var stöðvaður, var lögregla staðsett í innkeyrslu við íbúðarhús og í brekku þannig að ökumenn urðu þeirra ekki varir fyrr en þeir voru stöðvaðir. Lögreglan á Suðurnesjum svaraði ekki fyrirspurn Suðurnes.net vegna málsins, en nokkuð ljóst er að einhverjar milljónir króna hafi náðst í ríkiskassann við þessar aðgerðir lögreglu hvar hátt í eitt hundrað ökumenn hafa verið sektaðir. Lágmarkshraðasekt í dag er 10.000 krónur, en þær hækka hratt við hvern auka kílómeter þannig að gera má ráð fyrir að stór hluti ökumanna fái hærri sektir en það. Samkvæmt verklagsreglum [...]