Nýjast á Local Suðurnes

Lögðu til að ritun Sögu Keflavíkur yrði slegið á frest

Mynd: Facebook- Ozzo

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu til að ritun á sögu Keflavíkur yrði slegið á frest um eitt ár, á fundi bæjarstjórnar.

“Á fundi bæjarráðs þann 10. desember voru lagðar fram nokkrar viðbætur við fjárhagsáætlun og þar á meðal var framlag í umrætt verkefni. Fulltrúar minnihlutans ræddu þann möguleika að fresta ritverkinu og fékk það ekki hljómgrunn meirihlutans. Þar sem meirihlutinn í Reykjanesbæ og nú síðast hinn ópólitíski bæjarstjóri hafa fullyrt það í ræðu og riti að engar hagræðingartillögur hafi borist frá minnihlutanum í fjárhagsáætlanagerðinni er tillaga um að fresta ritun sögu Keflavíkur nú lögð fram.“ Segir í bókun Sjálfstæðisflokksins, sem þau Anna Sigríður Jóhannesdóttir, Baldur Þ. Guðmundsson og Margrét Sanders leggja nafn sitt við.

Forseti bæjarstjórnar bar tillögu Sjálfstæðisflokks undir atkvæði og var hún felld með 6 atkvæðum Samfylkingar, Framsóknarflokks og Beinnar leiðar gegn 5 atkvæðum Sjálfstæðisflokks, Frjáls afls og Miðflokks.