sudurnes.net
Lögðu hald á um 70 kannabisplöntur í heimahúsi - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði kannabisræktun í heimahúsi í umdæminu í fyrradag. Þegar lögreglumenn bar að húsnæðinu lagði þaðan mikla kannabislykt. Húsráðandi heimilaði leit og fundust þá nær 50 plöntur í ræktunartjöldum í bílskúr, svefnherbergi og á gangi húsnæðisins. Auk þess voru nær 20 plöntur í þurrkun í fataherbergi. Loks voru kannabisefni á stofuborði húsnæðisins. Húsráðandi var handtekinn á vettvangi og viðurkenndi hann eign sína á ræktuninni. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-500. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Meira frá SuðurnesjumTvöfalt fleiri strikuðu yfir nafn ÁsmundarMikill áhugi á Græna iðngarðinum í Helguvík70 kærðir fyrir of hraðan akstur við grunnskólaStöðvuðu kannabisræktun í heimahúsi – Lögðu hald á plöntur og ræktunarbúnaðFramkvæmdir við Krýsuvíkurgatnamót ganga vel – Enn má búast við töfum á umferðEyðilagði bíl og vegrið eftir að hafa dottað undir stýriIsavia hættir notkun á einnota drykkjar- og matarílátumOftast strikað yfir nafn Ásmundar FriðrikssonarVíðismenn féllu úr leik úr Borgunarbikarnum með sæmdKjaradeila kennara – Óttast að kennarar muni ekki draga uppsagnir til baka