sudurnes.net
Lögðu hald á mikið magn lyfja og amfetamíns í tveimur húsleitum - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum lagði sl. föstudag hald á mikið magn af lyfseðilsskyldum lyfjum og amfetamíni í tveimur húsleitum, að fenginni heimild til þeirra. Í öðru húsnæðinu fundust amfetamín og íblöndunarefni. Einnig vog, umtalsverð fjárhæð og skuldalistar sem talin eru til komin vegna fíkniefnasölu og voru þau því haldlögð. Í hinu húsnæðinu fannst taska með miklu magni lyfja og jafnframt krukka með hvítu efni, sem talið er vera amfetamín. Annar húsráðenda viðurkenndi eign sína á hluta amfetamínsins og öllum lyfjunum, en þvertók fyrir sölu og dreifingu. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-500. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Meira frá SuðurnesjumMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkFöstudagsÁrni: „það er kominn matur.“Ellefu nýútskrifaðir lögreglumenn beint í að kanna nagladekkjanotkunKeflavíkurnætur komnar til að veraMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnBætt heilsa í vaktavinnu er nauðsynlegKortleggja dreifingu ferðamanna – Reykjanesið fær lökustu einkunnSkemmdarvargar gjöreyðilögðu bifreið í ReykjanesbæBreytt fyrirkomulag við sölu eigna Kadeco – “Hefur reynst vel og má búast við því að það verði notað áfram”Viljayfirlýsing um átak í sköpun tímabundinna starfa