sudurnes.net
Lögðu hald á 42 kíló af fíkniefnum - "Gerir rúmlega 300 kíló af hörðum fíkniefnum á götum úti" - Local Sudurnes
Í 46 fíkniefnamálum sem upp komu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á síðastliðnu ári, 2017, lagði rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum (LSS) hald á rúmlega 42 kíló af hörðum fíkniefnum. Þar af voru rúm 35.000 grömm af kókaíni, tæp 7.000 grömm af amfetamíni, 196 grömm af metamfetamíni og 61 gramm af ecstasy (MDMA). Auk þessa voru haldlögð rúmlega 240 grömm af hassi. Rannsóknir allra þessara mála voru á borði rannsóknardeildar LSS. Undirstrikað er að um bráðabirgðatölur er að ræða, sem kunna að taka smávægilegum breytingum þegar endanlegt heildaruppgjör ársins liggur fyrir. Sá einstaklingur er reyndist hafa mesta magn fíkniefna innvortis var belgískur mikið fatlaður karlmaður sem var með rúmlega eitt kíló af kókaíni í 106 pakkningum. Er það mesta magn sem fundist hefur í einum einstaklingi í innvortis fíkniefnamálum hingað til. Styrkur haldlagðra efna í innvortis málum er yfirleitt mjög mikill eða um 90%. Styrkur í haldlögðum neysluskömmtum á götunni er á bilinu 7 – 15%. Því má ætla að margfalda megi ofangreind 42 kíló með 7 eða 8 sem gerir þá rúmlega 300 kíló af hörðum fíkniefnum á götum úti. Langflest þessara mála eiga upptök sín hjá tollvörðum sem hafa með höndum mjög virkt og skipulegt eftirlit í flugstöðinni. Sú leið [...]