sudurnes.net
Loftmengun gæti farið töluvert yfir heilsuverndarmörk - Local Sudurnes
Sóttvarnalæknir hefur gefið út tilmæli um væntanlega gasdreifingu fyrir föstudaginn 21. júlí 2023. Gasdreifingarspáin gerir ráð fyrir yfir 600 µg/m3 í Vogum, Njarðvík, Keflavík og Sandgerði. Þó ber að hafa í huga að spáin hefur hingað til verið að ofmeta styrkinn við yfirborð. Hætta er á heilsutjóni vegna loftmengunar frá eldgosum: Leiðbeiningar fyrir almenning er á vef sóttvarnalæknis https://island.is/eldgos Heilsuverndarmörk fyrir SO2 eru 350 μm/m3 fyrir klukkustundar meðaltal. Sérstaklega viðkvæmir eru börn, einstaklingar með undirliggjandi lungna- eða hjartasjúkdóm og þungaðar konur (vegna fósturs). Sjá töflu í ofannefndu skjali bls. 3. Við ákveðin mörk (600) ættu börn að vera inni (nema til að fara á milli staða ef þörf er á), fólk á að forðast áreynslu utandyra og við enn hærri gildi (2600) er öllu fólki ráðlagt að halda sig innandyra og loka gluggum. Mikilvægar upplýsingar: Tafla og leiðbeiningar hjá UST https://loftgaedi.is/ UST myndband um mat á loftgæðum https://www.youtube.com/watch?v=bdZaUzrXlXM Vöktun um gasmengun og spá https://www.vedur.is/eldfjoll/eldgos-a-reykjanesi/gasmengun/ Meira frá SuðurnesjumBandaríkjaher snýr aftur – Gömul flugskýli verða færð í standMatarmynd Suðurnesjastúlku vekur heimsathygliSkólastarf í öllum grunnskólum á morgunÞórarinn Steinsson skrifar: Hvað með börnin?Breytingar á sorphirðu á Ásbrú til skoðunarEldspúandi á baðfötum í saltgeymslu í leyfisleysiNotast við ferjusiglingar fari allt á versta vegAllt hreint mun sjá um hreingerningar í [...]