sudurnes.net
Lóan er komin - Fuglaljósmyndun vaxandi grein í ferðamennsku - Sjáðu flottar myndir! - Local Sudurnes
Lóan þykir veðurglöggur fugl og að margra mati er koma hennar merki þess að vor og sumar sé á næsta leiti. Lóan er nú komin til landsins eftir vetursetu í útlöndum. Ljósmyndarinn Guðmundur Falk náði þessum skemmtilegu myndum hér fyrir neðan af vorboðanum flotta í fjörunni á Garðskaga í gærmorgun. Lóan er komin á Garðskagann og þá er bara að sjá hvort veður fari ekki batnandi Guðmundur er lunkinn fuglaljósmyndari og hefur náð skemmtilegum myndum af flóru fugla hér á landi í gegnum tíðina, hann sagði í stuttu spjalli við Suðurnes.net að fuglaljósmyndun væri, eins og flest annað, vaxandi grein í ferðaiðnaðinum á Íslandi og að honum bærist fjöldi fyrirspurna um áhugaverða staði til að festa fuglalífið á filmu frá erlendum fuglaljósmyndurum. Áhugasamir geta haft samband við Guðmund í gegnum Facebook-síðu hans og fengið aðstoð og leiðsögn við fuglamyndatökur, en hann veit um afar góða staði hvar hægt er að ná flottum myndum af sjaldgæfum tegundum. Meira frá SuðurnesjumBörnin á Holti kunna öll trikkin í bókinni – Svona gerir maður ef manni langar í kakó!Bjóða upp á ókeypis foreldranámskeið í ReykjanesbæSuðurnesjahönnuðir selja gjafavörur í Svarta PakkhúsinuHelgi Jónas með nýja bók – Safnar fyrir fjölskyldur sem eiga erfitt fjárhagslegaEnn stefnt að opnun [...]