sudurnes.net
Lionsmenn afhentu Grindavíkurbæ fyrsta eintak af sögu klúbbsins - Local Sudurnes
Lionsklúbbur Grindavíkur fagnaði á vordögum 50 ára afmæli sínu. Í tilefni af þessum merku tímamótum var ákveðið að ráðast í bókaútgáfu þar sem saga klúbbsins síðastliðna hálfu öld var færð í letur. Bókin kom úr prentsmiðjunni núna rétt fyrir jólin og fékk Grindavíkurbær fyrsta eintak hennar afhent og veitti Róbert Ragnarsson bæjarstjóri því viðtöku á þorláksmessu. Bókin er bæði vegleg og glæsileg, en hún telur 123 blaðsíður og hana prýða vel yfir 100 glæsilegar ljósmyndir sem margar hverjar hafa sjaldan eða aldrei sést opinberlega. Þá er sögu klúbbsins gerð rækilega skil í meginmáli en höfundur bókarinnar er jafnframt upplýsingafulltrúi Grindavíkurbæjar, Siggeir F. Ævarsson. Bókin var prentuð í 400 eintökum og er eigulegur gripur, harðspjalda og prentuð á þykkan pappír þar sem ljósmyndasafnið nýtur sín vel. Bókin var seld í forsölu en þeir sem hafa áhuga á að næla sér í eintak geta nálgast bókina í Blómakoti þar sem hún verður til sölu. Meira frá SuðurnesjumLeggja 10 milljónir króna í að bjarga minjum af varnarsvæðinu frá glötunSýning á Þingvallamyndum í DUUS – Framlag Reykjanesbæjar til fullveldishátíðarinnar 2018Stálu ilmvatni og vodkaflöskum að verðmæti yfir 100.000 krónurFingralangir í flugstöð skömmuðust sín og skiluðu stolinni myndavélSuðurnesjabær fær 15 milljóna verkefnastyrkiBrotist inn hjá FjölsmiðjunniÆfingin skapar [...]