Nýjast á Local Suðurnes

Líkur á að hátt í 700 kíló af fíkniefnum fari í gegnum KEF

Lögregla og tollgæsla hafa lagt hald á um 63 kíló af hörðum fíkniefnum á Keflavíkurflugvelli það sem af er ári. Um er að ræða töluvert meira magn en lagt var hald á allt árið í fyrra.

Líklegt þykir að hátt í 700 kíló af efnum hafi farið í gegnum Keflavíkurflugöll það sem af er ári, en lögreglulið í Evrópu segja almennt að þau nái um 10–15% af þeim efnum sem eru í umferð. Engar rannsóknir hafa verið gerðar á þessu hér á landi og verður því að hafa í huga að ekki eru haldbærar tölur til um slíkt mat, einungis er stuðst við tölur frá lögregluembættum í öðrum löndum.

Sjö eru í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum í sjö aðskildum málum fyrir smygl á hörðum fíkniefnum til landsins í augnablikinu.