Nýjast á Local Suðurnes

Lífshlaupið – Landskeppni í hreyfingu hefst 1.febrúar 2017

Lífshlaup Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands verður formlega hleypt af stokkunum 1.febrúar næstkomandi, í samstarfi við heilsueflandi samfélag í Reykjanesbæ og Skólahreysti.

Markmiðið með heilsueflandi samfélagi er að stuðla að bættri heilsu allra íbúa Reykjanesbæjar, þar sem áhersla er lögð á að bæta félagslegt og manngert umhverfi og draga úr tíðni lífstílstengdra sjúkdóma með margvíslegu heilsueflingarstarfi.

Lífshlaup ÍSÍ á tíu ára afmæli um þessar mundir en með verkefninu eru landsmenn hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er, þ.e. í frítíma, vinnu, í skóla og við val á virkum ferðamáta.

Holtaskóli, sem var sigurvegari í Skólahreysti 2016, mun taka virkan þátt í athöfninni að þessu sinni og fer hún fram í íþróttahúsinu við Sunnubraut kl.08.30.

Við viljum hvetja allar stofnanir, skóla og einstaklinga í Reykjanesbæ til þess að skrá sig í Lífshlaup ÍSÍ, en skráningin fer fram á heimasíðu verkefnisins, lifshlaupid.is.

Einnig viljum við benda þeim aðilum sem vilja koma ábendingum á framfæri varðandi heilsueflingu í bæjarfélaginu á heimasíðu heilsueflandi samfélags í Reykjanesbæ, heilsueflandisamfelag.is.

Fyrir hönd samráðshóps, Jóhann Fr. Friðriksson, verkefnastjóri.