sudurnes.net
Lífshættulegur fíflaskapur á gossvæðinu - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu vegna hegðunar fólks á gossvæðinu við Fagradalsfjall. Lögregla leggur áherslu á að gossvæðið sé hættulegur staður og höfðar til fólks að sýna almenna skynsemi. Tilkynning lögreglu er hér fyrir neðan í heild sinni: Nú hefur eldgosið í Geldingadölum staðið yfir í þrjá mánuði, vel á annaðhundrað þúsund manns hafa notið þess að geta fylgst með eldgosinu í miklu návígi og það í lítilli fjarlægð frá Höfuðborgarsvæðinu. Viðbragðsaðilar hafa frá upphafi goss lagt sig alla fram um að koma í veg fyrir að slys verði á fólki sem heimsækir gosstöðvarnar, með leiðbeiningum ýmist á gosstöðvunum eða í gegnum frétta- og samfélagsmiðla. Gönguleiðir hafa verið stikaðar og lagfærðar, hættuleg svæði afmörkuð og grannt fylgst með hraunrennsli og gasmengun sem fólki gæti stafað hætta af. Eldgosasvæði er hættulegur staður að vera á og almenn skynsemi ætti því að segja fólki að nauðsynlegt er að gæta varúðar, hlusta á og fara eftir ráðleggingum viðbragðsaðila og vísindamanna. Sem betur fer hafa ekki orðið mjög alvarleg slys á fólki, þó að stundum hafi ekki mátt miklu muna. Nú hefur borið hefur á því undanfarið að fólk gangi út á hraunið á gosstöðvunum. Ekki þarf að fjölyrða um hversu [...]